>>>>>>>>>>>>

um

okkur

Bílavörur beint frá framleiðanda til þín milliliðalaust og á sanngjörnu verði. Þetta er okkar mottó. Áratuga reynsla í innflutningi bílavarahluta. Við kaupum inn beint frá verksmiðjum í Evrópu, USA og Asíu og getum þannig boðið verð sem ekki hafa sést á Íslandi áður.

Vanir menn – Vönduð vinna – Gæðavörur –  Sanngjarnt verð og umfram allt þægindi sem hvergi annarsstaðar…

12 vinnustöðvar með 7 lyftum af fullkomnustu gerð í 1100 fermetra húsnæði gerir okkur mögulegt að þjónusta þinn bíl á stuttum tíma.

Móttakan/Biðstofan með barnasalnum, kaffistofunni, tölvuverinu, galleríinu, lesstofunni og bíóinu eru í rúmgóðu, þægilegu og afslappandi umhverfi.

Með þinni þátttöku viljum við breyta þjónustunni við bíleigandann til framtíðar. Verð á þjónustunni hjá okkur er hagstætt. Komdu á Hvaleyrarbrautina og skapaðu framtíðina með okkur.

KvikkFix starfar eftir starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Hafnafjarðar og Kópavogssvæðis.

Filtertækni ehf. kt.691287-1069 stofnað 1987 í eigu Vigfúsar, Orra og Hinriks Morthens rekur KvikkFix. Filtertækni ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem ekki hefur fengið niðurfellingar skulda af neinu tagi og er algjörlega frjálst og óháð fyrirtæki. Eigendurnir sem allir starfa við fyrirtækið ásamt úrvals starfsliði hafa allir sama markmið…að viðskiptavinurinn fái góða þjónustu og gæðavöru gegn sanngjörnu verði. Yfir 47 þúsund aðilar hafa nú sannreynt þetta. Ef þú ert ekki einn þeirra þá komdu og prófaðu.

 K
F
0
a
um okkur
 K
F
0
b
staðsetning
 K
F
0
c
opnunartími
 K
F
0
d
hafðu samband
 K
F
0
panta tíma